þriðjudagur, 24. júlí 2007

Danía Rut 5 ára:)


5 ár eru síðan ég fékk frumburðinn í fangið. Mikið var það notalegt, skrýtið, eðlilegt og frábært bara. Hún hefur alla tíð verið alveg yndisleg stelpa og mikill gleðigjafi. Hún er mikið fyrir að knúsa og gerir mikið af því og stundum of mikið ef þú spyrð systur hennar. Hún er núna stödd hjá afa sínum og ömmu í sveitinni ásamt pabba sínum og systrum. Ég vil því senda henni mínar ástar og hamingjukveðjur með 5 ára afmælið. Mamma elskar þig stóra gullið mitt:):) Knús og kossar og mikið sakn..... Mamma:)


3 ummæli:

Íris sagði...

Innilega til hamigju með hans Daníu Rut þína. Vona að hún eigi rosa góðan dag í dag í sveitinni! Þarf svo að laga hjá þér tímann hér á blogginu svo það komi réttur tími hjá þér ;)
Sjáumst :)
Kv. Íris

Eygló sagði...

Til hamingju með skvísuna hana Daníu Rut :) Hún er algjört æði og svo mikið gull og svo er hún líka svo dugleg ;) Hún hefur það alveg pottþétt gott í sveitinni hjá afa sínum og ömmu :) Bestu kveðjur frá Akureyri: Eygló. P.s Bjössi biður að heilsa :):)

Erla sagði...

Innilega til hamingju með stóru stelpuna þína. Hún er svo sannarlega mikið yndigull og bræðir alla í kringum sig. Skil vel að þú saknir hennar og systra hennar. Elska ykkur allar, sjáumst sem fyrst. Mamman