laugardagur, 14. febrúar 2009

Fyrir 5 árum...


...... þá var ég stödd á fæðingardeildinni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og var að bíða eftir mínu öðru barni. Með hríðar og orðin vel kennd af gleðigasinu góða. Man að ég hringdi í mömmu til að láta vita hvernig gekk og hún fór að hlæja því ég hljómaði eins og ég væri drukkin sem ég var auðvitað ekki. Bara fyndið sko. En hún Sara Ísold kom svo nóttina eftir eða 15.febrúar 2004 og er þessvegna 5 ára á morgun, pæjan mín. Afmælisveislan hennar var haldin í dag, á Selfossi, hjá pabba og mömmu og var fámennt en mjög góðmennt:) Hún fékk margt fallegt í afmælisgjöf og skvísan er himinlifandi með daginn. Én jæja, njótið lífsins kæru lesendur, ef einhver kemur hérna inn ennþá;) Knús og koss, Arna

3 ummæli:

Erling.... sagði...

Það var gaman að hafa ykkur hér. Elska ykkur allar.....!
Þinn Pabbi

Erla sagði...

Til hamingju með dömuna, hún er algert yndi og tek undir með pabba þínum, það var gaman að hafa ykkur hér. Elska ykkur milljón. Mamman

Erla sagði...

Til hamingju með afmælið þitt elsku Arnan mín. Guð blessi þig ríkulega í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og veiti þér það sem hjarta þitt þráir. Elska þig endalaust. Mamman