sunnudagur, 15. júlí 2007

Fyrir 5 árum síðan...

...á morgun átti mín undurfagra dóttir Danía Rut að fæðast. Hún lét bíða eftir sér í 9 daga og mikið var gott að fá hana í fangið. Hún hefur verið mikið fyrir fangið síðan, er algjör knúsukerling. Hún er nýbúin að ganga í gegnum greiningu í Greiningastöð Ríkisins og þar var hún greind með "ódæmigerða einhverfu" sem þýðir að hún er einhverf en til dæmis ekki ofvirk sem fylgir oft einhverfui og einnig er hún ekki þroskahömluð. Hún skilur MIKLU meira en hún getur tjáð sig um. En þessar fréttir voru samt svolítið sjokk því einhverfa læknast mjög sjaldan. En það er hægt að hjálpa henni alveg rosalega mikið og ég þakka bara fyrir allt það góða fólk sem er að hjálpa henni núna. Eins og María þroskaþjálfi á leiksólanum, hún er bara frábær og Eyrún talmeinafræðingur. Fyrir ekki mörgum árum hefði Danía Rut bara verið kölluð vitleysingur sem hún er auðvitað ekki. Ég vildi bara segja frá þessu hér ef einhver var að fylgjast með úr fjarlægt. Maður veit víst aldrei.

Ég fór annars á unglingasamkomu í gærkvöldi. Voða gaman, fer svona stundum þó ég sé svona gömul orðin. Ég er allavega ekki elst. Í dag er svo búin að vera á Föðurlandi hjá pabba og mömmu að vinna aðeins. Bera viðarvörn á kofann og útiborð og svona, bara gaman að hjálpa til. Erum þarna svo mikið enda bara notalegt að vera þarna í kotinu og njóta náttúrunnar og samfélagsins við hvert annað. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég er enn að læra á þetta blogspot. Ég kann sko EKKERT á tölvur. Myndi undirstrika EKKERT ef ég kynni. Hehehe. Hafið það gott elskurnar, Arnan

3 ummæli:

Íris sagði...

Þú ert svo æðisleg Arna ;)
Svo er rosa gott að vera komin með greiningu fyrir hana Daníu Rut og hún er sko enginn vitleysingur, það sjá það allir sem umgangast hana! Hlakka til að sjá þig á eftir í sælunni á Fitinni ;)
Þín systir
Íris

Eygló sagði...

Sammála síðasta ræðumanni, þú er svo æðisleg Arna :) Þurfti eiginlega bara að repeat-a allt kommentið frá Írisi því það er svona hér um bil það sem ég myndi segja :) Danía Rut er algjör yndis stelpa og svo gaman af henni og hún er sko enginn vitleysingur og veit alveg hvað hún vill ;) Gull þessar stelpur sem þú ert svo heppin að eiga! Well, hlakka alveg rosalega til að hitta þig næst og vonandi verður það fljótlega.. Kveðja Eygló uppáhalds

Erling.... sagði...

Danía Rut er mikill karakter sem á eftir að sigrast á öllum sínum veikindum. Hún hefur sýnt hvað í henni býr og það er ekki lítið.
Gríðarlega dugleg og frábær - enda vinur afa síns.
Elska ykkur allar
þinn pabbi