föstudagur, 25. júlí 2008

Afmæli:)


Í gær varð hún Danía Rut mín 6 ára. Alveg með ólíkindum hvað tíminn flýgur á undan manni. Mér finnst alveg ótrúlegt að ég eigi barn sem er að fara að byrja í skóla. En mikið hlakka ég samt til að fara að kaupa allt skóladótið með henni og upplifa spenninginn með henni. Hún Danía Rut er svo mikið yndigull og ég er svo yfirmáta stolt af henni. Stundum finnst mér eins og hjartað mitt sé við það að springa, ég elska hana svo mikið. Og auðvitað systur hennar líka:)
Ég sit hérna heima hjá pabba og mömmu og ég var að enda við að klára að taka saman með frábærri hjálp frá mömmu. Ég er svo heppin að fá að halda afmæli stelpnanna minna hérna í Húsinu við ána þar til ég flyt í stærra húsnæði. Það er blessun:) Ekki eru allir eins blessaðir og ég með foreldra sem hjálpa svona vel til:) En jæja ég ætlaði ekki að hafa þetta blogg langt. Langaði bara aðeins að skrifa hérna inn í tilefni af afmælinu:) Guð geymi og blessi margfalt alla sem lesa. Ef einhverjir eru;) Arna, stooolta mamman:)

3 ummæli:

Eygló sagði...

Til hamingju með skvísuna þína :) Ekki skrýtið að þú sért að springa úr monti yfir henni enda er hún svo dugleg og svo mikið gull :)
Og já við erum sko blessaðar með foreldra, þau eru best :)
Lov U, þín uppáhalds Eygló

Erling.... sagði...

Það var gaman að hafa ykkur hér hjá okkur í sveitinni. Afmælið var til sóma og daman dugleg eins og fyrri daginn. Hún á eftir að pluma sig vel stúlkan.

Elska ykkur allar......!

Nafnlaus sagði...

til hamingju með stóru stelpuna þína..stelpurnar þínar eru svo fallegar..allar þrjár!
árný